Question | Answer |
Kirtlar skiptast í ______ og _____ ? | Innkirtla og útkirtla |
Hvað gera innkirtlar? | Frl. hormón sem berast oftast með blóði |
Hvað gera útkirtlar? | Frl. t.d. fitu, svita, meltingarsafa, briskirtlasafa, gall og seyta út frá sér í tiltekið líffæri |
Hvað er skjaldkirtillinn þungur? | Um 15 g |
Hvernig er skjaldkirtillinn í laginu? | Þunnur líkt og fiðrildi |
Hvaða kirtlar sitja á skjaldkirtlinum | kalkkirtlar |
Skjaldkirtillinn frl. tvennskonar hormón. Hvapa hormón? | Þýroxín og Kalsítónín |
Hvað eru margir kalkkirtlar á skjaldkirtlinum? | 4 |
Hvað frl. kalkkirtlarnir? | Parathormón |
Hverjir eru helstu innkirtlar mannsins? | Heilaköngukll, kalkkirtlar, undirstúka, heiladingull, skjaldkirtill, hósakirtill, nýrnahetta, bris, eggjastokkur og eistu |
Hvernig kirtill er briskirtillinn af mestu leiti? | Meltingarkirtill |
Hvað heita blettirnir í brisinu? | Briseyjar eða Langerhanseyjar |
Hvað eru margar briseyjar í brisinu? | ein til tvær milljónir |
Hvaða fjórar frumugerðir eru í briseyjunum? | A (alfa), B (beta), D (delta) og PP (FF) |
A- frumur mynda: | Glúkagon (hækkar sykur í blóði) |
B- frumur mynda: | Insúlín (lækkar sykur í blóði) |
D- frumur mynda: | sómatóstatín (hamlar frl. á meltingarsafa) |
PP- frumur: | samhæfa virkni ýmissa kirtla í meltingarfærum (virkja meltingarkirtla) |
Hver er stærsti kirtill líkamans? | Lifrin |
Hvað er lifrin þung? | 1200 g |
Hvert er fjölhæfasta líffærið? | Lifrin (vinnur um 500 störf) |
Framleiðir lifrin gall? | Já |
Hvaða þrjár meginæðar eru að lifrinni? | Slagæð að henni, lifrarportæð að henni og bláæð frá henni |
Hvaða litla líffæri hangir niður úr lifrinni? | Gallblaðran |
Hvað gerir lifrin við glúkósann ef hann fer yfir 100mg/dl? | Hún breytir honum í fjölsykrur |
En hvað gerir lifrin ef glúkósi fellur niður fyrir 70mg/dl? | Hún breytir glykogen í glúkósa |