click below
click below
Normal Size Small Size show me how
LÍATHR22
Próf 1
Term | Definition |
---|---|
Alhæfing | Vísindaleg skýring; almenn ályktun sem byggir á margvíslegum athugunum á sambærilegu fyrirbæri |
Smættun | Vísindaleg skýring; fyrirbæri er útskýrt með grunnferlum sem liggja að baki því |
Hippocrates | Taldi hugsun og tilfinningar vera staðsettar í heila |
Descartes | Faðir nútímaheimspeki. Ósjálfráð viðbrögð. Tvíhyggja. Heilaköngull |
Luigi galvani | Framkallaði samdrátt í vöðva með raförvun |
Johannes muller | Talsmaður þess að nota tilraunir í lífeðlisfræði Kenning um sérstaka taugaorku |
Pierre flourens | Fjarlægði hluta af heila dýra og kannaði hegðun þeirra í kjölfarið. annars kallað brottnám í rannsóknarskyni |
Santiago Ramon | Uppgötvaði að taugakerfið var samsett úr fjölda taugafruma |
Nýtistefna | Lögmál sem segir að besta leiðin til að skilja líffræðileg fyrirbæri sé að leitast við að skilja hver gagnsemi virkninnar er fyrir lífveruna |
Gen | Líffræðileg eining arfgengi |
Samsæta | Mismunandi form af sama geni sem sitja í sama sæti á litningi framkalla ólík sérkenni |
Dæling | Ferli þar sem blóði dýrs er skipt út fyrir vökva, oft saltlausn, til að undirbúa heilann fyrir vefjafræðilega skoðun |
Festir | Efni, s.s. formalín, sem notað er til að undirbúa og varðveita líkamsvef |
Formalín | Vatnskennd (aqueous) lausn af formaldehýð gasi |
Vefjaskeri | Tæki til að skera líkamsvef í þunnar sneiðar |
Litun | Litun á frumubolum heilavefs (brain tissue) Liturinn er tekinn upp af efnum í kjarna og umfrymi Metýlen blár (methylene blue) og Cresyl fjólublár (cresyl violet) |
Tölvusneiðmynd (computerized tomography (CT)) | Rötngengeisla (x-ray) er beint í gegn um sneið af líkamsvef Röntgengeislinn er numinn hinum megin Tækið greinir hve mikil geislun fer í gegn um vefinn Þær upplýsingar nýtir skanninn til að búa til mynd |
Segulómun (magnetic resonance imaging (MRI)) | Sendir sterkt rafsegulsvið í gegnum líkamsvef Kjarnar atóma snúast í tiltekna stefnu Rafsegulbylgjur nema rafbylgjur frá vetnisatómi Vetnisatóm eru í ólíkum styrk í ólíkum vefjum Þær upplýsingar nýtir skanninn til að búa til mynd |
Sveimisegulómsskoðun (diffusion tensor imaging (DTI)) | Myndgreining sem sýnir knippi (bundles) mýldra taugasíma í lifandi heila |
Skráning taugavirkni | örsmá rafskaut og stór rafskaut |
PET myndgreining | einstaklingar taka inn geislavirkt efni og skannin nemur þau efni og býr til mynd í heilanum |
Starfræn myndgreining | Aðlagað segulómtæki (fMRI) notað við greininguna. Magn súrefnis í æðum í heila er mælt. Aukið magn súrefnis er þar sem mest virkni er í heilanum |
Raf- og efnafræðileg örvun | Skurðaðgerð þar sem leiðslutúba (guide cannula) er varanlega grædd í höfuðkúpuna svo hægt sé að setja mjóa túbu síðar inn í heilann |
Ljósörvun | Próteinum sem örvast við ljós komið inn í frumur með vírusum LED ljós leitt inn sem kveikir og slekkur á virkni frumanna |
Utankúpusegulörvun | Segulsvið er framkallað með breytilegri rafvirkni. Segulsviðið kemur af stað boðspennu í taugafrumum og örvar þarmeð svæði á heilaberki |